| Bjarni Bjarnason | |
![]() |
Bjarni
Bjarnason, (f. 1965) bjó víða erlendis í æsku, birti
ljóð í blöðum strax sem unglingur, ritstýrði þá
skólablaði og skrifaði leikrit um tvítugt sem
áhugaleikfélag sýndi. Í janúar 1989 kom út fyrsta bók Bjarna, ljóðabókin Upphafið sem hefur að geyma 36 ljóð, þar af einn 20 erinda frumspekilegan ljóðabálk. Í september 1989 kom út önnur bók Bjarna, Ótal kraftaverk, sem er ljóðrænir prósar. Í september 1990 komu samtímis út tvær bækur eftir Bjarna, ástarljóðabókin Urðafjóla, og smásagnasafnið Í Óralandi. Í september 1992 kom út fyrsta skáldsaga Bjarna, Til minningar um dauðann, sem vakti athygli fyrir nýbreytni í efni og framsetningu. Í september 1993 komu út sjö einþáttungar, Dagurinn í dag, sem má leika hvern og einn fyrir sig eða hvern á eftir öðrum svo úr verði sýning í fullri lengd. Í september 1994 kom út safnritið Vísland eftir Bjarna, þar sem fyrri verk birtast öll ýmist í heilu lagi eða lítið breytt, ásamt fimm ritgerðum um hugann og vitundina. Í ritgerðunum er maðal annars fjallað um orð og setningar sem urðu til í draumum, og þar er einnig mynd af afar sérstöku tæki sem er einskonar líking við vitundina, tæki sem Bjarna dreymdi og lét teikna fyrir sig. Árið 1994 setti Bjarni einnig á stofn bókmenntatímarit sem ber heitið Andblær. Þar birta margir ungir og athyglisverðir höfundar efni. Árið 1995 átti Bjarni vinningssögu "Sólarlag við sjávarströnd" í smásagnasamkeppni Ríkisútvarpsins. Árið eftir kom út önnur skáldsaga Bjarna, Endurkoma Maríu sem var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 1996. Í ágúst 1998 hlaut Bjarni bókmenntaverðlaun Reykjavíkurborgar fyrir skáldsögu sína Borgin bak við orðin. |
books@ormstunga.is sími 561 0055 fax +354 561 0025 Upp Forsíða