Kristinn R. Ólafsson
Kristinn R. Ólafsson, sem er löngu ţjóđkunnur fyrir útvarpspistla sína frá Spáni, er fćddur í Vestmannaeyjum 1952 og hefur búiđ á Spáni í um ţrjátíu ár, lengst af í Madríd.

Áriđ 1979 birtist fyrsta bók Kristins, ljóđabókin Inní skóginn, rituđ undir pennanafninu Krói. Nokkrar smásögur eftir hann hafa birst í blöđum og tímaritum eđa veriđ lesnar í útvarp.

Hann hefur ţýtt ţrjár skáldsögur eftir spćnska höfunda. Ţćr eru:

Paskval Dvarte og hyski hans (Vaka-Helgafell 1988) og Býkúpan (Vaka-Helgafell 1991), báđar eftir nóbelsskáldiđ Camilo José Cela, og Refskák eđa Bríkin frá Flandri (Ormstunga 1996) eftir metsöluhöfundinn Arturo Pérez-Reverte.

Fyrsta frumsamda skáldsaga Kristins, Fjölmóđs saga föđurbetrungs, kom út hjá Ormstungu 1996. Pósthólf dauđans (Ormstunga 1998) er önnur skáldsaga höfundar. Kristinn hefur sjálfur ţýtt og endurritađ báđar sögurnar á spćnsku.

Sagan um Fjölmóđ kom út í Barselónu í mars 2005 og nefnist á spćnsku La Saga de Fiólmod el Intrépido. Sagan var upprunalega skrifuđ á óvísindalegri forníslensku enda gerist hún á 12. öld á Íslandi, á Spáni og í öđrum heimum. Viđ ţýđinguna/endurritunina hefur Kristinn R. leitast viđ ađ fyrna málfariđ svolítiđ líka og sótt talsvert í smiđju Don Kíkóta eftir Cervantes í ţví sambandi.

Voriđ 2003 kom sagan Pósthólf dauđans (Epitafio) út hjá bókaforlaginu Brosquil, einnig í ţýđingu og endurritun höfundarins sjálfs. Hann hefur sömuleiđis veriđ viđriđinn útgáfu ţriggja norrćnna smásagnabóka á Spáni enda starfar hann í hópi norrćnna ţýđenda í Madríd. Hann valdi og ţýddi íslensku smásögurnar í ţessar bćkur. Ţćr eru: „Hijas del frío“ (Kuldans dćtur) međ smásögum kvenna á 20. öld, „El vikingo afeitado“ (Rakađi víkingurinn) međ sögum eftir karlmenn og „Historias desde el hielo“ (Sögur af ísnum) međ norrćnum smásögum fyrir börn. Hann hefur líka ţýtt spćnskar bókmenntir á íslensku, m.a. eftir spćnska Nóbelsskáldiđ Camilo José Cela.


books@ormstunga.is     sími 561 0055   fax 552 4650    Forsíđa