ISBN 9979-63-042-6 Guðmundur Steinsson
Leikrit I III
Heildarútgáfa leikrita Guðmundar Steinssonar.
Inngangur eftir dr. Jón Viðar Jónsson.

Öll leikrit Guðmundar Steinssonar, 22 talsins, í þremur bindum, alls um 1400 bls. með fjölmörgum ljósmyndum úr lífi og starfi Guðmundar.

Guðmundur Steinsson (1925–1996) var eitt fremsta leikritaskáld Íslands um sína daga og heildarútgáfa á leikritum hans er löngu tímabær. Leikrit Guðmundar, Sólarferð og Stundarfriður, urðu mjög vinsæl þegar þau voru frumsýnd fyrir rúmum tveim áratugum á sviði Þjóðleikhússins og Stundarfriður sýndur víða um lönd í kjölfarið.

Guðmundur var höfundur sem þorði að fara eigin leiðir. Verk hans spanna ólík lífsviðhorf, aðferðir og stílgerðir: hefðbundið raunsæi í elstu verkum hans frá sjötta áratugnum, skopfærða ádeilu og dæmisögu í leikjunum frá sjöunda áratugnum, stílfært raunsæi á mörkum alvöru og háðs í leikritum áttunda áratugarins og eins konar leikrænt goðsagnaraunsæi í verkum hans frá síðustu árum.

Um helmingur þeirra tuttugu og tveggja verka, sem eru prentuð í ritsafninu, hafa aldrei komið fram opinberlega. Útgáfan kallar því augljóslega á nýtt heildarmat á verkum skáldsins.

Umsjón með útgáfunni hefur Jón Viðar Jónsson, fil. dr., og ritar hann jafnframt ítarlegan inngang.

Sjá meira: Einstakur viðburður í íslenskri útgáfusögu

 

 15% afsláttur Harðspjöld ~ um 1400 bls ~ júní 2003 ~ 14×21 cm

 Tilboðsverð: 8.670 kr.

Panta

books@ormstunga.is     Sími 561 0055   Fax 552 4650    Upp  Forsíða