ISBN 978-9979-63-080-7 |
Finnur Dellsén, Ármann
Jakobsson ritstj. Múrbrot |
Ragnar Helgi Ólafsson hannaði kápu. KAFLAR
|
Múrinn var eitt af fyrstu íslensku pólitísku vefritunum og það eina sem boðaði róttæka stefnu. Hann var gefinn út af Málfundafélagi úngra róttæklinga (MÚR) frá 2000 til 2007. Markmiðið var að auka veg róttækra sjónarmiða á Íslandi. Í þessari bók eru á annað hundrað greina sem birtust á Múrnum og höfundar telja mikilvægt innlegg í pólitíska umræðu á Íslandi. Bókin hefur að geyma róttæka samfélagsrýni fyrir byrjendur og lengra komna. Af því að bókin er róttæk inniheldur hún mikla gagnrýni á samfélagið. Samt er þetta jákvæð bók því öfugt við þá sem tala bara um nútímann og framtíðina til þess að reyna að sannfæra fólk um að hlutirnir geti ekki verið eða orðið öðru vísi, þá fjallar þessi bók um það hvernig hlutirnir gætu verið, hvernig þeir ættu að vera. Meðal höfunda eru: Ármann Jakobsson, Finnur Dellsén, Huginn Freyr Þorsteinsson, Katrín Jakobsdóttir, Kolbeinn Óttarsson Proppé, Páll Hilmarsson, Stefán Pálsson, Steinþór Heiðarsson og Sverrir Jakobsson. |
| TILBOÐ | Kilja ~ 367 bls ~ október 2008 ~ 12×20 cm ~ Verð: 1.990 kr. |
|
1.692 kr. |
Panta Múrbrot |
books@ormstunga.is Sími 561 0055 Fax 552 4650 Upp Forsíða