| ISBN 9979-63-004-3 | Ólafur Haukur
Símonarson Rigning međ köflum |
![]() Guđjón Ketilsson hannađi kápu. |
Jakob á í baráttu
viđ sjálfan sig og framandi umhverfi ţar sem hann
dvelst sumarlangt í sveitinni í byrjun sjöunda
áratugarins. Hann var sendur í sveit til Guđbjarts,
kotbóndans sem býr međ fjölskyldu sinni óţćgilega
nálćgt hérađshöfđingjanum sem er svo vel kvćntur. Fátćkt og ríkidćmi takast á í sérkennilega frumstćđu sveitasamfélagi. Međan synir nágrannans stunda sjóinn á mótorbát dyttar Guđbjartur ađ girđingum og Benni, sonur hans, fiskar í sođiđ á árabát. Heimasćturnar á báđum bćjunum koma líka viđ sögu. En nýir tímar eru í vćndum og óvćntir atburđir taka ađ gerast. Átök fullorđna fólksins og blóđhiti unga fólksins leiđa til ískyggilegra atvika. Ţetta er spennandi en jafnframt ljúfsár og fyndin frásögn af dvöl drengs úr höfuđborginni í sveitinni, basli í búskap, merkilegu mannlífi og ástríđufullum ástum unglinga. Rammíslenskur veruleiki og ćvintýri í senn. Kjarnyrt mál Ólafs nýtur sín til fulls og hver setning vitnar um nćma sýn hans á mannlegt eđli. |
| Harđspjöld ~ 174 bls ~ nóv. 1996 ~ 15×23 cm | |
| Leskafli | |
2.873 kr. |
Skođa Rigningu međ köflum í Netbókabúđinni. |
books@ormstunga.is Sími 561 0055 Fax 552 4650 Upp Forsíđa